NÁTTÚRAN | Þróun hverasvæðisins

Þróun hverasvæðisins

Geysir er án efa langþekktasti goshver heims enda er nafn hans notað sem heiti á hverum á ensku. Til eru heimildir um Geysi allt frá 13. öld en gosvirkni hans hefur verið mismunandi í gegnum tíðina og breytist gjarnan við jarðskjálfta.

Þegar Geysir var virkastur voru gosin allt að 60-80 m há. Á Geysissvæðinu er fjöldi mismunandi hvera, sá vinsælasti er Strokkur sem gýs á 5-10 mínútna fresti árið um kring allt að 30 metra háum strókum af vatni og gufu. Einnig eru þar hverirnir Sóði, Smiður, Fata, Óþerrishola, Litli Geysir, Litli Strokkur, Konungshver og Blesi sem er fallega blár. Haukadalur er skemmtilegt útivistarsvæði allt árið um kring. 1905- Geysir gýs tvisvar á sólarhring 1907 – Strokkur vaknar upp og sofnar smám saman aftur.

Hverinn Smiður var grafinn upp af trésmið sem var að vinna á svæðinu vegna konungskomunnar og er nafn hversins þannig til komið. Friðrik VII Danakonungur kemur til Íslands og heimsækir svæðið með mikilli reisn. 1914 – Geysir er alveg hættur að gjósa 1922 – Kristján X Danakóngur kemur til Íslands og heimsækir Geysi 1930 – Þorkell Þorkelsson er við rannsóknir við Geysi, rannsakar svæðið og gerir ágætt kort af því 1934 Óþerrishola gýs og Strokkur er óvirkur, en þó sagður hafa gosið þetta ár 1935- Prófessor Trausti Einarsson og Jón frá Laug grafa út raufina í Geysi Heildarrennsli af svæðinu er talið vera 20 l/s. Sigurður Jónasson kaupir Geysissvæðið og selur aftur til íslenska ríkisins 1937- Norðmaðurinn Tom F. Barth á Íslandi. Geysir gaus þá 4-5 sinnum á sólarhring, 60 m háum gosum 1944 – Geysir gýs lítið, rennsli 4,7 l/s.

Strokkur er óvirku og 0,6 m eru niður að vatnsborði 1953 – Geysisnefnd sett á stofn, hún setur umgengisreglur um svæðið og lætur girða það af svo búpeningur valsi ekki um hverasvæðið 1954-

Geysir aftur hættur öllum gosum, nema sápa sé sett í hann 1963 – Strokkur er hreinsaður með bor niður á 40 m dýpi og hefur gosið á 8-10 mínútna fresti síðan 1981 – Raufin í skál Geysis var endurgrafin og gos byrjar. Þetta var gert vegna kvikmyndatöku á svæðinu.

Geysir gýs þó ekki nema 40-50 kg. af sápu séu sett í hann 2000 – Geysisstofa opnuð 3. júní og sápugos framkallað í Geysi 8. júní.

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní urðu jarðskjálftar á Suðurlandi og aftur 21. júní (M 6,5)

Við skjálftana vaknaði Geysir og gaus 2-4 sinnum á dag út allt ári en yfirleitt ekki hærra en 10-15 m.

Nöfn hveranna Fata, goshver sem lítið gýs í dag Haihver er rétt ofan girðingar Seyðirinn, gýs ef sápa er sett í hann Stjarna, goshver sem var virkur stuttan tíma eftir jarðskjálftana 1896 Blesi, blesan er haftið milli heitra (tæra) og volga (bláa) hlutans Strokkur er líkur smjörstrokki í laginu

 

Strokkur gaus óvenjulega hátt 2. apríl 2012 eða um 30 metra. Þetta var mjög tignarlegt og frábært gos og það er ljóst að hverinn er að vakna verulega til lífsins nú þegar vorið er að koma til okkar.

Gosin í Strokki eru yfirleitt 15-20 metrar og gýs hann að meðaltali á 7-10 mínútna fresti allan sólarhringinn. Sjá fréttir hér: 

Fréttir um Geysi

Meira um hversvæðið