GEYSIR CENTER | Tjaldsvæði
Tjaldsvæði
Tjaldsvæðið við Geysi
Verðskrá 2026
Opið frá 15. maí – 15. september
Á tjaldsvæðinu við Geysi geta náttúruunnendur og ævintýragjarnir ferðalangar notið þess að gista við jaðar hins einstaka hverasvæðis, þar sem Geysir og Strokkur eru í örfárra mínútna göngufjarlægð. Láttu goshverina vekja þig á morgnana eða njóttu þess að sofna við hljóð náttúrunnar að kvöldi til.
Tjaldsvæðið er staðsett í stuttri göngufjarlægð frá hverasvæðinu, Haukadalsskógi, Hótel Geysi, Geysir verslun, Geysir Bistro og Geysi Glímu veitingastað.
15. maí – 11. júní
| Fullorðnir | 2.500 kr. |
| Börn (8–15 ára) | 500 kr. |
| Börn (0–7 ára) | Frítt |
| Rafmagn | 1.400 kr. |
| Sturta | 500 kr. |
| Gistináttaskattur (á hvert tjald, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl) | 400 kr. |
Opnunartími móttöku
08:00–11:00
Sturtur
08:00–10:30
12. júní – 15. september
| Fullorðnir | 2.500 kr. |
| Börn (8–15 ára) | 500 kr. |
| Börn (0–7 ára) | Frítt |
| Rafmagn | 1.400 kr. |
| Sturta | 500 kr. |
| Gistináttaskattur (á hvert tjald, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl) | 400 kr. |
Opnunartími móttöku
08:00–12:00 og 17:00–20:00
Sturtur
08:00–20:00
Aðstaða
Þjónustuhúsið býður upp á:
Heitar sturtur
Salerni
Salerni fyrir hreyfihamlaða
Þvottaaðstöðu
Sorplosun
Rafmagnstengla
Leiksvæði fyrir börn með aparólu og fótboltamörkum
Tjaldsvæðinu er skipt upp í tvö svæði:
Svæðið næst hverasvæðinu er eingöngu ætlað tjöldum, þannig að gestir geta notið kyrrðarinnar og einstakrar náttúru sem best.
Húsbílar, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og aðrir vagnar eru á sérstöku svæði þar sem boðið er upp á rafmagnstengingar.
Afþreying í nágrenninu
Á Geysissvæðinu er fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa, meðal annars:
Geysir og Strokkur
Gönguleiðir um Haukadalsskóg
Hjólreiðar
Fjallgöngur
Hestaferðir
Jöklaferðir á Langjökli
Hálendisferðir
Golf á Geysisvelli
Velkomin á Tjaldsvæðið við Geysi
Njóttu sumarsins í hjarta Gullna hringsins þar sem stórbrotin náttúra, rólegt umhverfi og öll helsta þjónusta eru innan seilingar. Hvort sem þú ferðast með tjald, húsbíl, hjólhýsi eða fellihýsi er Tjaldsvæðið við Geysi frábær áfangastaður til að upplifa íslenska náttúru eins og hún gerist best.
Við hlökkum til að taka á móti þér!